19.12.1977
Neðri deild: 40. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1538 í B-deild Alþingistíðinda. (1244)
113. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Hæstv. forseti. Við 1. umr. þessa máls í Ed. komu fram óskir um tilleknar upplýsingar í sambandi við þetta mál, og þegar málið kom til meðferðar hjá hv. iðnn. Ed. voru af hálfu iðnrn. veittar allar þær upplýsingar sem um var beðið, bæði af hálfu n. og hv. þm. við 1. umr. Þetta voru mjög ítarlegar upplýsingar, skjöl málsins og undirbúningsgögn ýmis, auk þess sem nokkrir embættismenn, þeir sem gerst hafa um þetta mál fjallað, komu á fund nefndarinnar.
Ég kannast ekki við að það hafi á nokkurn hátt verið legið á upplýsingum í þessu efni, heldur allar þær upplýsingar veittar sem óskað hefur verið eftir. Ég vil láta þetta koma skýrt fram.