20.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í B-deild Alþingistíðinda. (1338)

133. mál, gagnkvæmar fiskveiðiheimildir Íslendinga og Færeyinga

Frsm. (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Þessi till. fjallar um staðfestingu á samkomulagi milli Íslendinga og Færeyinga sem gert var fyrir nokkru og fjallar um gagnkvæmar veiðar á loðnu og kolmunna, Hæstv. utanrrh. og sjútvrh. gerðu grein fyrir þessu samkomulagi við fyrri umr. og vísast hér til þess.

Utanrmn. hefur fjallað um till, og mælir einróma með samþykkt hennar.