24.10.1977
Neðri deild: 6. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í B-deild Alþingistíðinda. (134)

46. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. þessu í fjarveru hæstv. fjmrh. sem er nú bundinn við önnur skyldustörf.

Mér skilst, að hæstv. fjmrh. hafi haft samráð við forustumenn þingflokkanna varðandi flutning og efni þessa frv., og leyfi mér að vona að ekki sé ágreiningur um frv. eða efni þess. En eins og segir í grg. var gert ráð fyrir með setningu laga nr. 23 frá 1977 að BSRB hefði lokið sinni samningsgerð fyrir þær tímasetningar sem lögin tilgreindu. Vegna þeirrar óvissu, sem nú ríkir um samninga BSRB, er hér gert ráð fyrir heimildarákvæði um frestun uppkvaðningar Kjaradóms ef með þarf og allir aðilar samþykkja. Taki Kjaradómur afstöðu í máli BHM áður en BSRB hefur lokið samningsgerð má búast við öðru kjaradómsmáli í kjölfar dómsins á grundvelli 7. gr. 1. nr. 46 frá 1973, sbr. 1. gr. laga nr. 23 frá 1977. Endurskoðun nær þó eingöngu til launastigans, en ekki annarra kjaraatriða sem nú eru óljós.

Þótt þessar sérstöku ástæður valdi því, að slíkrar lagabreytingar sem þessarar þyki þörf einmitt nú, er fullljóst, að eins og nú háttar er lögunum ábótavant að því leyti, að þau gera ekki ráð fyrir að unnt sé að fresta uppkvaðningu kjaradóma, enda þótt allir málsaðilar æski þess. Því þykir eðlilegra, að sú heimild, sem hér er lagt til að veitt verði, sé ekki eingöngu háð þeim kjarasamningum, sem nú standa yfir, heldur komi að fullu inn í lögin sem varanleg heimild.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að skýra þetta mál nánar. En svo háttar til, að nauðsynlegt er að fá afgreiðslu þessa frv. frá Alþ. í dag, og vil ég því leyfa mér að óska, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til fjh.- og viðskn., og beini einnig ósk til n. að hún flýti afgreiðslu málsins, svo að málið komi aftur til 2. umr. nú síðar í dag.