21.12.1977
Efri deild: 52. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1698 í B-deild Alþingistíðinda. (1399)

Þingfrestun

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Þar sem þetta er síðasti fundur Ed. fyrir þingfrestun vil ég leyfa mér að þakka hv. dm. fyrir gott og ánægjulegt samstarf. Ég óska hv. dm. gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Sömu ósk hef ég fram að færa til handa skrifstofustjóra Alþingis og öðrum starfsmönnum Alþingis. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu. Ég vænti þess að við hittumst hér allir heilir á næsta ári.