21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1720 í B-deild Alþingistíðinda. (1429)

1. mál, fjárlög 1978

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Ég sem margir aðrir þm. úr Reykjavík hef þá skoðun, að um langt árabil hafi nokkuð verið misskipt þeim fjármunum sem Alþ. hefur dreift um hin ýmsu kjördæmi til ýmissa nauðsynlegra hluta. Ég vil þó halda því fram, að nú hafi nokkuð áunnist til hins betra. Við vitum að því, sem fram kemur og næst fram, er náð fram með samkomulagi. Hvað viðkemur einhverjum ímynduðum eða staðreyndum mistökum sem orðið hafa hjá borgaryfirvöldum í sambandi við einstakar byggingar, þá eru samt í þessari till. ýmsir liðir sem eru bráðnauðsynlegir fyrir það mikla þéttbýlissvæði sem hér er. Hafandi í huga það, sem ég hef sagt í sambandi við samstöðuna, treysti ég mér ekki til að greiða atkv. með till., en sit hjá við atkvgr.