21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1724 í B-deild Alþingistíðinda. (1444)

Þingfrestun

Ragnar Arnalds:

Ég vil fyrir hönd okkar alþm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir okkur til handa. Ég vil einnig nota þetta tækifæri til þess að þakka honum fyrir réttláta fundarstjórn og gott samstarf við okkur þm. nú á þessu þingi sem ávallt áður. Og ég vil óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég vil einnig þakka starfsfólki Alþingis fyrir ágæt störf. Ég leyfi mér að vona að við megum öll hittast heil til starfa að loknu jólaleyfi. Ég vil biðja þm. að taka undir orð mín með því að risa á fætur. — [Þm. risu úr sætum.]