21.12.1977
Sameinað þing: 35. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1724 í B-deild Alþingistíðinda. (1446)

Þingfrestun

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi bréf: „Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 99. löggjafarþings, frá 21. des. 1977 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 23. jan. 1978.

Gjört í Reykjavík, 20. desember 1977.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson. Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“ Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 99. löggjafarþings, er frestað frá 21. des. og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 23. jan. 1978.

Ég leyfi mér að óska hv. alþm. og starfsmönnum þingsins svo og landslýð öllum gleðilegra jóla og farsæls nýárs.