23.01.1978
Sameinað þing: 37. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1725 í B-deild Alþingistíðinda. (1447)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Hinn 9. jan. var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsrh., að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 23. janúar 1978, kl. 14.00

Gjört í Reykjavík,

9. janúar 1978.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson. Forsetabréf um að Alþ. skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Samkv. þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.