23.01.1978
Sameinað þing: 37. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1725 í B-deild Alþingistíðinda. (1450)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Þá hefur mér borist eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 18. jan. 1978.
Framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Samkvæmt beiðni Jóhanns Hafstein, 6. þm. Reykv., sem nú er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður hans, Geirþrúður Hildur Bernhöft félagsmálafulltrúi, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Ragnhildur Helgadóttir,
forseti Nd.“
Ég býð Geirþrúði Bernhöft velkomna til starfa á Alþingi.