07.02.1978
Sameinað þing: 44. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1986 í B-deild Alþingistíðinda. (1626)
111. mál, rekstur sjúkrahótels í Reykjavík
Fyrirspyrjandi (Gunnlaugur Finnsson):
Herra forseti. Þegar fsp. mín á þskj. 132 var lögð fram höfðu borist um það fréttir, að væntanlega yrð lögð niður starfsemi sjúkrahótels Rauða krossins hér í Reykjavík. Síðan þessi fsp. var lögð fram höfum við að vísu fregnað það, að rekstur sjúkrahótelsins verði tryggður áfram, Þessi fsp. kom raunar í nokkru framhaldi af umr, sem hér urðu á hv. Alþ. í fyrra, þegar verið var að ræða þróun heilbrigðismála, og þá var um það rætt, hvort ekki væri rétt að auka rekstur slíkra sjúkrahótela, þar sem hægt væri að komast af með miklum mun minni kostnað dag hvern en í hinum dýrari og fullkomnari sjúkrahúsum. Mér fannst ástæða til að leggja fram þessa fsp. einmitt til þess líka að vita hvort af hálfu heilbrrn. hefðu verið gerðar einhverjar ráðstafanir í þá veru að auka slíka þjónustu og um leið að stuðla að betri nýtingu á hinum stærri sjúkra húsum, þannig ef svo mætti orða það, að þau afköstuðu meiru en þau hafa gert til dagsins í dag.
Ég held að ég þurfi ekki meira um þessa fsp að segja á þessu stigi og læt þess vegna máli mínu lokið. En það má öllum ljóst vera, að það hlýtur að vera hagkvæmt ef hægt er að komast af með einfaldari þjónustu, þar sem daggjöld eru aðeins þriðji partur eða fjórði partur af þeim daggjöldum, sem greidd eru á dýrustu sjúkrahúsunum.