09.02.1978
Neðri deild: 53. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2091 í B-deild Alþingistíðinda. (1699)

35. mál, alþjóðasamningur um ræðissamband

Frsm. (Ellert B. Schram):

Virðulegi forseti. Allshn. Nd. hefur fengið mál þetta til meðferðar og skoðað frv. eins og það liggur fyrir eftir afgreiðslu Ed. N. mælir einróma með samþykkt frv. eins og það liggur fyrir.