15.02.1978
Neðri deild: 58. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2452 í B-deild Alþingistíðinda. (1807)
87. mál, rannsóknarlögregla ríkisins
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Það var ekki ætlun mín með þeim fáu orðum, sem ég mælti hér áðan, að hefja langar umr. um þetta mál, aðeins skýra fyrirvara þann, sem fylgdi nafni mínu undir nál., eins og skylt er, Enda leggur nú hv. 8. landsk. þm. til, að þm. hætti frekara fjasi, svo að hægt sé að greiða atkv., og sýnir það náttúrlega alþekktan áhuga hans á þessum málum, Nú verða aðeins örfá orð af minni hendi.
Menn hafa talað, bæði hann og fleiri, þótt eins og rannsóknarlögregla ríkisins sé ekki byrjuð að starfa. Þetta er mesti misskilningur. Hún hefur þegar hafið störf og rannsóknarlögreglustjóri er nú til húsa í lögreglustöðinni á Hverfisgötu 115. Það má náttúrlega segja, að þröngt sé um hana núna, en hún getur starfað, og að vísu skiptir húsnæði miklu máli, en ekki öllu. Ég hef oft hugsað um húsnæðismál háskólans, þegar hann var hér til húsa í alþingishúsinu. Þá var svo þröngt í lagadeildinni, að stúdentar urðu að sitja í gluggakistunum þegar flestir sóttu tíma. Það urðu því mikil viðbrigði að flytja í hina glæstu sali í hinni nýju háskólabyggingu. En ég efast um, þegar á allt er lítið, að komið hafi betri lögfræðingar úr hinni glæsilegu háskólabyggingu en þeir sem sátu hér í gluggakistunum í alþingishúsinu áður fyrr. Það má því deila um þetta atriði endalaust.
Það er auðvitað alltaf vafamál, hvað á að eyða miklum tíma í að rifja upp liðna tíð, og því sem liðið er, verður ekki breytt, það er hverju orði sannara. Hitt er annað mál, að það hlýtur að fara dálítið í skapið á alþm, þegar nýsett lög eru brotin, Og við töldum það, ég og fleiri, vera brot á 1. gr. laga frá 18. des. 1976 þegar húsnæði var valið utan Reykjavíkursvæðisins, Þó tel ég þetta orðalag, sem nú er ákveðið í frv., allt eins gott, að aðalbækistöðvar rannsóknarlögreglunnar séu í Reykjavík eða nágrenni, En þetta að ganga gegn nýsettum lögum ætti auðvitað ekki að henda okkur alþm. Það minnir stundum á það, eins og fyrir kemur þegar menn kaupa nýja báta, að þeir láta saga sundur nýja bátinn, eins og mörg dæmi eru um, til þess að gera hann örlitið lengri en hann var og væntanlega hentugri.
Af minni hálfu verður þetta mál ekki tafið frekar. Ég læt þetta verða mín síðustu orð. Það virðast allir hér hafa mikinn áhuga á þessum málum og er það vel. Þess vegna verðum við öll að vona að vel takist til um framkvæmdina.