21.02.1978
Sameinað þing: 46. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2527 í B-deild Alþingistíðinda. (1854)
341. mál, jöfnun símgjalda
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Út af því, sem kom fram hjá hv. 5. þm. Norðurl. v., þá held ég að það muni vera svo, að ég hafi verið kominn með svar við fsp. hans í tösku mína fyrir þinghlé fyrir jól, en þá komst hún ekki að, en hafði svo tekið hana síðar upp úr töskunni, og þar sem ég sá hana ekki á dagskránni núna var ég búinn að gleyma þessu. Ég skal bæta úr því næsta þriðjudag og vera undir það búinn að svara þessari fsp. hans.
Út af því, sem hv. 2. þm. Reykn. sagði, vil ég geta þess, að þau ár, sem ég hef farið með þessi mál, hefur verið gerð breyting til batnaðar milli dreifbýlis og þéttbýlis í hvert sinn sem gjaldskrárbreyting hefur átt sér stað, og svo var einnig gert hjá fyrirrennurum mínum tveimur næstum á undan. Hins vegar eru því takmörk sett sem hægt er að gera í hvert sinn, vegna þess að því eru takmörk sett hve þessari stofnun er leyfilegt að hækka sín gjöld, og er mikið umrætt sem eitt af vandamálum þjóðfélagsins, hvað póstur og sími taki miklar tekjur til sín. En eins og kunnugt er lifir hann ekki á öðru en þeim tekjum sem hann aflar. Það eru gerðar afar miklar kröfur til þeirrar stofnunar, bæði á þessum sviðum og einnig á því sviði að byggja upp hið sjálfvirka kerfi, og stofnunin hefur verið að því sýknt og heilagt, þó að það taki sinn tíma. Ég vil benda á það, að þessi breyting núna kostar, um 100 millj kr., og sú breyting, sem hefur verið gerð áður, hefur verið fólgin í því að ganga á núllsvæðið, eins og hv. 2. þm. Reykn. orðaði það, með því að fækka skrefunum, sem þar væru til umráða, úr 600 í 350. Nú var það mat okkar, sem um fjölluðum, að lengra mættum við ekki ganga á þeirri braut.
Svo er það með stað eins og Brúarland í Mosfellssveit, að það er orðið svo mikið álag á því kerfi, að það er vonlaust að breyta þar um fyrr en búið er að bæta kerfið sjálft, og það er háð því að byggja þar hús sem nú er unnið að, því að ekki er húsnæði fyrir fleiri sjálfvirkar vélar á Brúarlandi, í því húsi senn þar er nú. Það er unnið að því að byggja hús á Brúarlandi til að setja þar upp nýjar vélar, og þá er hægt að gera þessa breytingu sem hv. 2. þm. Reykn. talaði um, en fyrr ekki.
Ég tel að það hafi verið stigið spor í rétta átt. En ég vil taka það fram, að sú gjaldskrárhækkun, sem fékkst um daginn, 28%, mun ekki standa undir rekstri Landssímans á þessu ári. Það er alveg vonlaust verk, því að slíkar hækkanir hafa orðið á rekstrarkostnaði hans, eins og ég gat um áðan, þrátt fyrir það að mjög hafi verið að því unnið að draga úr rekstrarkostnaðinum.
Frekar skal ég ekki svara út í þessi mál fyrr en þá um leið og ég svara hv. 5. þm. Norðurl. v.