21.02.1978
Sameinað þing: 47. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2538 í B-deild Alþingistíðinda. (1866)

95. mál, hámarkslaun o.fl.

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég tel nauðsynlegt að upplýsa það að gefnu tilefni við þessar umr., að þfkn. hefur ekki verið nein leyninefnd fyrir Alþfl. eða öðrum hér á Alþ. Ég hef undanfarin ár átt sæti í þessari n. kosinn eða tilnefndur af þingflokki Alþfl. til að gegna starfi þar og hef látið þingflokkinn fylgjast með því sem þar hefur verið að gerast á hverjum tíma.

Ég hef ekki verið beðinn um nein skilaboð frá þingflokknum til þfkn. um breytingar á því sem þar hefur verið gert.