28.02.1978
Sameinað þing: 49. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2662 í B-deild Alþingistíðinda. (1942)
196. mál, snjómokstur á þjóðvegum á Vestfjörðum
Fyrirspyrjandi (Jóhannes Árnason) :
Herra forseti. Ég hef leyft mér að leggja fram á þskj. 386 fsp. til hæstv. samgrh. um snjómokstur á þjóðvegum á Vestfjörðum. Fsp. hljóðar þannig:
„Hvaða reglur gilda hjá Vegagerð ríkisins um snjómokstur á þjóðvegum á Vestfjörðum:
1) Á þjóðvegum út frá Ísafirði til nálægra byggðarlaga?
2) Á þjóðvegum út frá Patreksfirði til nálægra byggðarlaga?“
Ástæðan fyrir því, að þessi fsp. er lögð fram, er einfaldlega sú að fá það hreint fram frá fyrstu hendi frá hæstv. samgrh., hvaða reglur gilda um snjómokstur á þjóðvegum á þessum tveimur svæðum á Vestfjörðum, annars vegar Ísafjarðarsvæðinu og hins vegar Patreksfjarðarsvæðinu á sunnanverðum Vestfjörðum. Ég hef orðið var við það, þar sem ég þekki best til, að fólk þekkir ekki nægilega til þessara mála. Þá vill stundum koma fyrir að menn gera sér rangar hugmyndir um þessa hluti og það er ekki gott. Þá vill það stundum fara þannig, að gerðar eru kröfur á aðila sem ekki hafa vald til þess að ráða fram úr málum eins og menn vildu hafa þau. Á miklum snjóavetrum er gjarnan óánægja með framkvæmd þessara mála og hagsmunir margra aðila rekast á.
Ég vil aðeins leggja áherslu á mikilvægi þess, að framkvæmd þessara mála sé skipuleg og örugg og að í henni komi fram góð þjónusta af ríkisins hálfu.