28.02.1978
Sameinað þing: 49. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2662 í B-deild Alþingistíðinda. (1943)
196. mál, snjómokstur á þjóðvegum á Vestfjörðum
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 386 er fsp. frá hv. þm. Jóhannesi Árnasyni: „Hvaða reglur gilda hjá Vegagerð ríkisins um snjómokstur á þjóðvegum á Vestfjörðum:
1) Á þjóðvegum út frá Ísafirði til nálægra byggðarlaga?
2) Á þjóðvegum út frá Patreksfirði til nálægra byggðarlaga?“
Vegagerðin greiðir helming kostnaðar við snjómokstur á öllum þjóðvegum, þegar beðið hefur verið um hann og greiðsla hins helmings kostnaðar verði tryggð, enda telji verkstjóri moksturinn koma fleiri vegfarendum til góðs en þeim sem um moksturinn biður. Óskir sveitarfélags um helmingsmokstur ganga að jafnaði á undan óskum einstaklinga. 3. gr. snjómokstursreglnanna hljóðar svo: „Vegagerðin greiðir allan kostnað við mokstur nokkurra mikilvægra samgönguleiða, þó ekki nema ákveðinn fjölda daga í viku eða mánuði. Sé óskað eftir meiri mokstri á þeim vegum skal kostnaði við hann skipað samkv. 2. gr. Hver verkstjóri fær skrá yfir þá vegi á hans svæði sem þessi grein nær til.“
Samkv. þessari grein hefur verkstjórinn á Ísafirði fyrirmæli um að halda vegum út frá Ísafirði opnum eins og hér segir:
1. Djúpvegur milli Hnífsdals og flugvallar skal opnaður alla daga í viku, þó miðað við áætlunarflug, á leiðinni Holtahverfi-flugvöllur. Ísafjarðarkaupstaður annast mokstur í þéttbýli kaupstaðarins.
2. Djúpveg milli Hnífsdals og Bolungarvíkur skal opna tvisvar í viku, mánudag og föstudag, og opna má þriðjudaginn ef skipa þarf út framleiðsluvörum Bolvíkinga á Ísafirði. Ef um mjög lítinn snjó er að ræða má opna þennan veg aðra daga.
3. Djúpveg milli flugvallar og Súðavíkur skal opna einu sinni í viku, þriðjudag, en annan dag ef um útskipun er að ræða frá Ísafirði.
4. Vestfjarðaveg um Breiðadalsheiði og Súgandafjarðarveg um Botnsheiði skal opna einu sinni í viku meðan fært þykir, þann fyrri á mánudegi, en hinn síðari á þriðjudegi. Heimilt er að opna þessa vegi tvisvar í viku vor og haust, þegar snjólétt er.
Á sama hátt hefur verkstjórinn á Patreksfirði eftirfarandi fyrirmæli um opnun vega út frá Patreksfirði.
1. Veginn milli Patreksfjarðar og flugvallar skal opna tvisvar í viku í sambandi við áætlunarflug, og aukalega einu sinni ef mikið er um farþegaflug til Patreksfjarðar.
2. Veginn til Tálknafjarðar og Bíldudals skal opna einu sinni í viku, á mánudögum.
3. Barðastrandarveg til Brjánslækjar skal opna einu sinni í viku í tengslum við komu flóabátsins til Brjánslækjar.
Segja má að komið sé á reglubundinni opnun á báðum síðasttöldum vegum, þ. e. til Bíldudals og Brjánslækjar, annan virkan dag vikunnar, á föstudögum til Bíldudals og á fimmtudögum til Brjánslækjar, gegn greiðslu helmings kostnaðar á móti Vegagerðinni.
Ekki eru þessi fyrirmæli ófrávíkjanleg og bera m. a. 6. og 7. gr. snjómokstursreglnanna það með sér, en 6. gr. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Verkstjórum ber að varast að moka þegar veður eru óhagstæð, eins og í snjókomu eða skafrenningi eða þegar slíkt veður er fyrirsjáanlegt. Enn fremur skulu þeir fækka mokstrardögum eða leggja mokstur niður um lengri eða skemmri tíma í samráði við vegaeftirlitið þegar kostnaður við hann er orðinn óhóflegur.“
7. gr. hljóðar svo:
„Ef vegir eru færir þann dag eða þá daga, sem moka á, verður ekki mokað aðra daga í stað þeirra. Sé ekki unnt vegna veðurs að opna á áætlunardegi, má opna næsta færan dag á eftir.“
Í sambandi við þetta mái mun það m. a. vera ástæðan fyrir þessari fsp., að nokkuð öðrum reglum er fylgt í sambandi við mokstur út frá Ísafirði en á Patreksfirði. Í því sambandi hefur vegamálastjóri talið rétt að gefa skýringar, jafnvel þó að fsp. gefi ekki beint tilefni til þess. Þær eru svona:
Mokstur út frá Ísafirði og Patreksfirði er ekki óáþekkur, ef undan er skilinn vegurinn milli Hnífsdals og Bolungarvíkur. Ástæðan fyrir sérstöðu á þessari leið umfram aðrar leiðir á Vestfjörðum er að við hana eru tveir kaupstaðir sem um leið eru fjölmennustu þéttbýlin á Vestfjörðum. Vegna nálægðar þeirra eru meiri samskipti á milli þeirra en annarra staða á Vestfjörðum, t. d. vegna flugvallar, skólagöngu, aðstoðar við sjúka, opinberra aðila o. s. frv. Eftir því sem Bolungarvíkurvegurinn hefur batnað er hann oft langtímum fær, ef ekki væri fyrir að fara snjóflóðum úr fjallshliðinni ofan vegar. Þar sem vegalengdin er stutt er lítill kostnaður því samfara að skreppa með hjólaskóflu með tönn til að hreinsa smáspýju af veginum, en ef um meiri háttar fannfergi er að ræða gildir reglan: tveir opnir dagar í viku. Viðbótin, um mokstur á Bolungarvíkurvegi þegar lítill snjór er á honum, er ný og sú, sem umdæmisverkfræðingar þeir, sem verið hafa á Vestfjörðum, hafa lagt mest kapp á, umfram það sem bættist í reglur við endurskoðun í ársbyrjun 1977.
Þá má að lokum geta þess, að Barðastrandarsýsla stendur mjög vel að vígi á þessu sviði, þar sem hún fær um 900 þús. kr. á fjárl. til vetrarflutninga í Vestur-Barðastrandarsýslu og notar þá fjárveitingu til þess að borga helming moksturs á móti Vegagerðinni.
Þessar upplýsingar, sem ég hef nú veitt, og svör við fsp. vona ég að nægi hv. fyrirspyrjanda.