28.02.1978
Sameinað þing: 50. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2672 í B-deild Alþingistíðinda. (1954)

84. mál, söluskattur af útfluttum iðnaðarvörum

Sverrir Hermannason:

Herra forseti. Ég hef ekki hugsað mér að ræða þetta mál efnislega núna, en ég hjó eftir því, að í lok ræðu sinnar tók hv. flm. fram, að hann legði ekki til að vísa þessu máli til n. Ég vek athygli á því, að ákveðnar hafa verið tvær umr. um þetta fjárhagsmál í Sþ. og fyrir því er alveg nauðsynlegt á milli umr. að sjálf fjvn. fái að fjalla um málið. Því tek ég upp till. um að vísa till. til hv. fjvn.