07.03.1978
Sameinað þing: 53. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2805 í B-deild Alþingistíðinda. (2049)
171. mál, íslenskukennsla í fjölmiðlum
Flm. (Sverrir Hermannsson) :
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka ágætar undirtektir við þessa till. mína. Það er mikið rétt, að menn skyldu ganga hóflega um dyr í sambandi við meðferð tungunnar, og margur er sá dárinn sem gripur til stóryrða þegar hann er að lasta tungutak annarra, en verður svo uppvís að því sjálfur að mikið skortir á að hann hafi nægjanlegt vald á tungunni, og oft finnur maður sárlega til þess, að miklu betur þyrfti maður að kunna málið en raun ber vitni um.
Úr því sem hv. þm. Jónas Árnason minntist á orðið „áhugaverður“, þá hef ég að vísu veitt því orði athygli, en hef ekki á því fordóma og ég get ekki skipt á því og orðinu „hnýsilegur“ í öllu falli, vegna þess að „hnýsilegt“ er eftir minni máltilfinningu og skilningi „forvitnilegt“. En það þarf ekki alltaf að vera eftirsóknarvert, það sem er manni forvitnilegt, þannig að það getur verið „áhugavert“ og eftirsóknarvert getur það verið. (Gripið fram í: Athygli vert.) Athygli vert. Þetta er alveg rétt og ég skal athuga þetta. En ég er með annað mál hér á dagskrá og mun væntanlega flytja fyrir því framsögu og hef breytt þar — þar kom fyrir orðið áhugaverður — yfir í hnýsilegt, því að þar getur það átt við.
Hv. þm. Sigurlaug Bjarnadóttir sagðist ekki hafa tekið eftir því, að fram kæmi í grg. eða framsögu till. um, hvernig þetta ráð skyldi skipað. Það er margtekið fram, að það skal kosið hlutfallskosningu á Alþ., og mín skoðun er sú, að allir þingflokkar eigi að eiga það aðild að, enda þótt einn þeirra t. d. gæti það ekki eftir réttum hlutföllum. En ég hygg þó, að verði þessi till. samþykkt mundu menn í svona máli reyna að sjá til þess að svo yrði. (Gripið fram í.) Væntanlega nær þessi till. samþykki á þessu þingi og ég hef ekki trú á því og bið og vona að hann verði ekki af lagður áður en þessu þingi slitur. Fyrr mættu nú vera ósköpin. En þess vegna er það; að verði þetta samþykkt nú á þessu þingi, þá væri a, m. k. mín till. að allir þingflokkar ættu þarna aðild að. Ég gat þess hér, án þess að segja strangt fyrir um það, að mér þætti eðlilegt að ráðið kysi sjálft framkvæmdastjórn og skipti að öðru leyti með sér verkum og setti sér reglur, sem ríkisstj. síðan samþykkti. Ég gat þess, að aðalkostnaðurinn við framkvæmdina hlyti sjónvarpið að bera, enda eðlilegt, því að það nýtur ávaxtanna og fær eftirsóknarverðasta, athyglisverðasta og hnýsilegasta efni til flutnings sem um getur. Og ég segi ekkert nema það, að ef menn ætla að fara að telja eftir peninga til slíkra framkvæmda sem þessara, þá ættu þeir að láta það vera að taka að láni milljarða til þess að reisa karbithelviti uppi í Hvalfirði.