07.03.1978
Sameinað þing: 53. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2810 í B-deild Alþingistíðinda. (2054)

174. mál, kortabók Íslands

Flm. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Á þskj. 340 flytja 5 þm. úr öllum þingflokkum till. til þál. um útgáfu kortabókar Íslands og er skorað á ríkisstj. að hafa um það forgöngu. Í grg. með till. segir svo m. a.:

„Kortabók Íslands verður safn korta af Íslandi, þar sem margs konar fróðleikur um land og þjóð er settur fram á myndrænan hátt.

Þjóðlandaatlasar hafa verið gefnir út í velflestum Evrópulöndum, þ. á m. Norðurlöndum, en auk þess í mörgum löndum í öðrum heimsálfum. Fyrsta kortabók, sem út var gefin af þessu tagi, var Finnlandsatlas, sem gefin var út 1899, en hefur verið gefinn út þrisvar sinnum síðan. Hefur slík útgáfa hvarvetna verið talin hin mesta nauðsyn, til að auka þekkingu á landsháttum.

Árið 1976 kom út kortabók yfir öll Norðurlönd. Að undanskildum nokkrum þáttum náttúrufars eru nær engar upplýsingar um Ísland í kortabókinni. Oftast er einungis ein stærð eða tala yfir allt landið þar sem upplýsingar eru birtar eftir umdæmum í hinum löndunum.

Kortabókinni er ætlað að vera upplýsinga- og heimildarit í þágu stjórnvalda, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga sem fást við margs konar áætlanagerð varðandi byggð, atvinnulíf og landnýtingu. Er þar átt við nýtingu lands til búskapar, ýmiss konar verklegra framkvæmda, samgangna, almenningsnota og náttúruverndar.

Kortabókin verður gagnlegt heimildarrit fyrir innlenda og erlenda fræðimenn sem stunda raunsóknir á ýmsum fræðasviðum. Enn fremur yrði bókin mikilvæg fyrir fjölmarga aðra, sem vilja kanna útbreiðslu ýmiss konar fyrirbæra til lands og sjávar og athuga samhengi þeirra á milli.

Síðast en ekki síst er ótalið menntunargildi bókar af þessu tagi. Hún yrði notuð af kennurum og nemendum í framhaldsskólum og á háskólastigi og yrði handbók eða uppsláttarrit fyrir kennara og nemendur í efstu bekkjum á grunnskólastigi.

Til þess að ná þeim árangri, sem að framan er getið, er fyrirhugað að setja fram á kortum og á annan myndrænan hátt ýmis einkenni lands og þjóðar. Þar á meðal má nefna náttúrufar, sögu, atvinnulíf, félagsmál og menningarmál.“

Það hefur alllengi verið mikið áhugamál ýmissa aðila, að út verði gefin kortabók eða atlas fyrir Ísland. Má það furðu gegna, hversu mjög hefur dregist úr hömlu framkvæmd svo mikilvægs og hnýsilegs verks. Á s. l. ári áttu áhugaaðilar fund með sér um málið og voru þar mættir fulltrúar ýmissa stofnana, svo sem menntmrn. og samgrn., Seðlabanka, Framkvæmdastofnunar ríkisins, Hagstofu, Rannsóknastofnana atvinnuveganna, Háskóla Íslands og enn fremur fulltrúar frá bændasamtökum og iðnrekendum. Á fundinum kom fram mikill áhugi allra fundarmanna á útgáfu kortabókar Íslands. Á fundi þessum voru rædd almenn atriði málsins, svo sem eintakafjöldi við útgáfu bókarinnar. Komst fundurinn að þeirri niðurstöðu, þótt hún sé eftir lauslega athugun og til bráðabirgða, að ef bókin yrði þannig úr garði gerð, að hún nýttist við átthaga- og landafræðikennslu á flestum skólastigum, væri ekki ástæða til annars en að ætla, að þannig greiddist teiknunar- og prentunarkostnaður. Upplýsingasöfnun og úrvinnsla gagna verði hins vegar framkvæmd af einstökum ríkisstofnunum án endurgjalds. En auðvitað þarf að fjármagna verkið á framkvæmdatíma og taka áhættu af halla á útgáfunni. Þá er ekki fjarri lagi að ætla, að Norræni menningarmálasjóðurinn hlaupi eitthvað undir bagga og styrki slíka útgáfu. Er þá haft í huga, að hluti verksins verði unninn til þess að bæta hinn mjög svo slaka hluta Íslands í kortabók Norðurlanda, en Menningarmálasjóðurinn styrkir menningarmálefni sem talin eru vera áhugaverð og eru talin vera athygliverð fyrir fleiri en eitt Norðurlandanna.

Á fyrrgreindum fundi var kosin til bráðabirgða undirbúnings- og framkvæmdanefnd, sem hafa skyldi með höndum að athuga, hvers konar efni væri æskilegt að birta í slíkri bók, afla nánari upplýsinga um útgáfukostnað, verktilhögun og annað sem að verkinu lýtur. Í nefndina voru valdir fulltrúar frá Háskóla Íslands, Landmælingum, Seðlabanka og Framkvæmdastofnun ríkisins, og má af þessu marka að málið er komið á nokkurn rekspöl. Gera má ráð fyrir að ekki verði tök á að ráðast í útgáfu fyrr en að tveimur til þremur árum liðnum, þótt fljótlega verði hafist handa af fullum krafti.

Ég vil að lokum geta um helstu efnisflokka í kortabók Íslands. Í I. flokki yrði til að mynda náttúra landsins, landslag, jarðfræði Íslands, jarðeðlisfræðileg kort, jarðvegur og gróður, vatnafræðikort, veðurfar og hafið við Ísland. Í II. flokki sagnfræðileg kort, svo sem stjórnmálasaga, hagsaga og menningarsaga. Í III. flokki upplýsingar um íbúa landsins, mannfjölda og mannfjölgun, dreifingu íbúanna, fólksflutninga, menntan. Í IV. flokki ýmis hagræn kort, fiskveiðar, landbúnaður, orku- og námuvinnsla, iðnaður, samgöngur, viðskipti. Í V. flokki um stjórnarfarið, umdæmaskipting, t. d., alþingis- og sveitarstjórnarkosningar og margt fleira. Þetta er aðeins nefnt til þess að sýna í sjónhending af hversu mörgu er að taka og margt hnýsilegt verkefni sem um þarf að fjalla. Ég vil biðja hv. alþm. sérstaklega að veita máli þessu athygli sína og stuðning.

Ég legg svo til, herra forseti, að umr. þessari verði frestað og málinu vísað til hv. allshn.