15.03.1978
Neðri deild: 67. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2909 í B-deild Alþingistíðinda. (2145)

219. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. gerir ráð fyrir tveimur breytingum á lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins.

Önnur þessi breyting er að Verðlagsráð skuli framvegis ákveða verð á síldarúrgangi, en ákvörðun verðs á honum hefur ekki heyrt undir Verðlagsráð til þessa. Um verð á síldarúrgangi hefur verið samið milli síldarsaltenda og þeirra aðila sem kaupa þennan úrgang. Meðan leyfð var veiði á síld til bræðslu varð það samkomulag milli aðila, að verð á síldarúrgangi skyldi vera ákveðið hlutfall að verði síldar til bræðslu. Eftir að veiðar á síld voru leyfðar að nýju til manneldis fyrir þremur árum hafa veiðar til bræðslu hins vegar verið bannaðar og verða það vafalaust um mörg ár. Af þeim sökum hefur verð á síld til bræðslu ekki verið ákveðið undanfarin ár og framangreind hlutfallsregla um verð á síldarúrgangi því verið ónothæf. Komið hefur í ljós að töluvert misræmi hefur verið á því verði, sem greitt er fyrir þennan síldarúrgang á ýmsum stöðum. Síldarsaltendur hafa sérstaklega óskað eftir því að Verðlagsráð ákveði verð á síldarúrgangi framvegis, og hefur Verðlagsráð fallist á það fyrir sitt leyti. En með þessu frv. er leitað heimildar fyrir Verðlagsráð til að verða við þessari beiðni. Ekki þykir ástæða til að breyta skipulagi ráðsins að öðru leyti en því, að í stað fulltrúa fisksöluaðila í fiskúrgangsdeild komi fulltrúi síldarsaltenda við verðlagningu á síldarúrgangi.

Hin breytingin er sú, að lifur frá veiðiskipum verði framvegis verðlögð í fiskúrgangsdeild. Fulltrúar í fiskideild Verðlagsráðsins eru fyrst og fremst fulltrúar söluaðila að því er varðar lifur,en lifrarkaupendur hafa lýst því yfir, að þeir eigi erfitt með að sætta sig við þetta fyrirkomulag. En ekki þykir ástæða til að setja á stofn sérstaka deild vegna þessarar verðlagningar, enda munu lifrarkaupendur sætta sig við að fulltrúar kaupenda í fiskúrgangsdeild gæti hagsmuna þeirra.

Það eru m. ö o. þessi tvö atriði sem þetta frv. fjallar um og fylgja þessu meðmæli Verðlagsráðsins — allra aðila Verðlagsráðsins — að þessar breytingar verði gerðar á lögunum.

Herra forseti. Að lokinni þessari umr. legg ég til að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.