04.04.1978
Sameinað þing: 61. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3095 í B-deild Alþingistíðinda. (2273)

185. mál, Álafoss hf.

Fyrirspyrjandi (Þórarinn Þórarinsson) :

Herra forseti. Þessi fsp., sem er í 11 þáttum, skýrir sig nokkurn veginn sjálf. Tilefni hennar er það, að upplýsingar af opinberri hálfu varðandi umrætt fyrirtæki hafa verið og eru takmarkaðar og þykir því eðlilegt að stuðla að því, að Alþ. fái um það sem bestar upplýsingar.