10.04.1978
Efri deild: 76. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3241 í B-deild Alþingistíðinda. (2415)

Varamenn taka þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson) :

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 6. apríl 1978.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþýðuflokksins, Bragi Sigurjónsson bankaútibússtjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Eggert G. Þorsteinsson,

4. landsk. þm.

Þá hefur mér og borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 10. apríl 1978.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsóknarflokksins í Vestfjarðakjördæmi, Ólafur Þ. Þórðarson skólastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Steingrímur Hermannsson,

2. þm. Vestfirðinga.“

Þeir hafa báðir setið hér á Alþingi á þessu kjörtímabili áður, Bragi Sigurjónsson og Ólafur Þ. Þórðarson, og býð ég þá báða velkomna til starfa.