12.04.1978
Efri deild: 77. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3332 í B-deild Alþingistíðinda. (2479)

220. mál, Fiskimálasjóður

Frsm. (Oddur Ólafsson) :

Herra forseti. Sjútvn. Ed. hefur fjallað um 220. mál, frv. til laga um Fiskimálasjóð, þar sem lagt er til að hámark lána úr sjóðnum færist úr 640 þús. upp í 2 millj. N. leggur einróma til, að frv. verði samþykkt.