13.04.1978
Neðri deild: 76. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3418 í B-deild Alþingistíðinda. (2592)

69. mál, söluskattur

Frsm. meiri hl. (Lárus Jónsson):

Virðulegi forseti. Fjh.- og viðskn. hv. d. hefur haft frv. til laga um breyt. á lögum um söluskatt til athugunar, frv. á þskj. 79. N. varð ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. n. mælir með því, að frv. verði vísað til ríkisstj. Minni hl., hv. þm. Lúðvík Jósepsson, skilar séráliti.