18.04.1978
Sameinað þing: 67. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3545 í B-deild Alþingistíðinda. (2699)

354. mál, hátíðarbrigði vegna stórafmælis Snorra Sturlusonar

Fyrirspyrjandi (Jónas Árnason) :

Herra forseti. Á þskj. 413 er svo hljóðandi fsp., sem ég hef leyft mér að beina til hæstv. menntmrh.: „Hvað hyggst menntmrn. gera til hátíðabrigða í tilefni af því, að á þessu ári eru liðnar átta aldir frá fæðingu Snorra Sturlusonar?“