18.04.1978
Sameinað þing: 67. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3548 í B-deild Alþingistíðinda. (2703)
354. mál, hátíðarbrigði vegna stórafmælis Snorra Sturlusonar
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Ég fer ekki fram á það, að móðurmálskunnátta mín sé borin saman við kunnáttu Snorra Sturlusonar, hvað þá að ég fari fram á að menn setji mig upp að hliðinni á þeim snillingunum Stefáni Jónssyni og Jónasi Árnasyni. En ég geri ráð fyrir því, að við séum frekar að tala um þessa till. eða þessa fsp., sem hér er borin fram, en rekja fyrir þingheimi hversu fróðir menn séu í móðurmálinu. Þess vegna leyfi ég mér að standa hér upp, bæði til gamans og fróðleiks fyrir þingheim, til þess að upplýsa að Ríkisútvarpið hefur tekið þá ákvörðun að láta gera kvikmynd um Snorra, ævi hans og störf. Þessi kvikmynd mun verða gerð í samvinnu við norrænar sjónvarpsstöðvar og þá sérstaklega við hina norsku sjónvarpsstöð, en Norðmenn sýndu þessari hugmynd mjög mikinn áhuga strax þegar hún var færð í tal við þá og þeir munu taka að verulegu leyti þátt í kostnaðinum af gerð þessarar kvikmyndar.
Ég skal taka það fram, að þessi ákvörðun var tekin áður en Stefán Jónsson setti fram hugmynd sína um að vert væri frekar að halda upp á ártíð Snorra en afmæli hans, en hingað til hefur verið venja hér á landi að halda frekar upp á það, þegar menn hafa fæðst en þegar þeir hafa dáið. Við skulum láta liggja á milli hluta, hvort Snorri fæddist árinu fyrr eða síðar, en það hefur verið almennt viðurkennt og er miðað við að hann hafi fæðst á árinu 1178, og við látum við það standa að svo stöddu.