21.04.1978
Sameinað þing: 69. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3741 í B-deild Alþingistíðinda. (2881)

293. mál, fjáraukalög 1976

Sighvatur Björgvinsson; Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. undirtektirnar. Hann hefur heitið því að beita sér fyrir því, að þessar upplýsingar liggi fyrir. Ég þakka honum fyrir það, enda er það alger forsenda fyrir því, að samvinna geti tekist milli fjvn. og fjmrn. og stofnana þess um aðgæslu í ríkisfjármálunum, eins og hæstv. fjmrh. hefur óskað eftir, að upplýsingar eins og þessar liggi fyrir hjá fjvn., svo að n. viti að hverju hún gengur þegar forstöðumenn ríkisstofnana ganga á hennar fund, bæði þegar fjárlagagerð er undirbúin og eins utan þess tíma. Nauðsynlegt er fyrir fjvn. að hafa þær upplýsingar á reiðum höndum, sem t. d. er spurt um hér.