26.04.1978
Efri deild: 86. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3962 í B-deild Alþingistíðinda. (3107)

170. mál, Þjóðleikhús

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Sú till., sem form. menntmn. deildarinnar hefur lagt fram, er samin í samráði við mig. Ég get verið því fyllilega samþykkur. að málið verði afgreitt á þennan veg. Ég leyfi mér því að draga til baka 1. brtt., sem ég hef borið fram við þjóðleikhúsfrv. Aðrar till., sem ég hef borið fram, koma hins vegar til atkv., þar sem ekki hefur verið neitt gengið til móts við efni þeirra.