26.04.1978
Neðri deild: 83. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3974 í B-deild Alþingistíðinda. (3143)

152. mál, þinglýsingalög

Frsm. (Ellert B. Schram) :

Virðulegi forseti. Hv. allshn. Nd. hefur rætt þetta mál á fundi sínum og orðið sammála um að mæla með samþykkt frv. eins og það liggur fyrir eftir afgreiðslu í Ed. Með þessu frv. til þinglýsingalaga fylgja allmörg frv., sem eru til samræmingar ef þinglýsingarfrv. sjálft verður samþ. Er augljóst að leiðréttingar þær og lagfæringar, eins og fyrr segir, eru til samræmingar. N. hefur orðið sammála um að mæla með samþykkt þeirra allra eins og þau liggja fyrir.