03.11.1977
Sameinað þing: 13. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í B-deild Alþingistíðinda. (320)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Umræðan skiptist í tvær umferðir, þannig að í fyrri umferð hefur forsrh. til umráða allt að hálfri klukkustund og fulltrúar annarra þingflokka en forsrh. 20 mínútur hver. Í síðari umferð hefur hver þingflokkur 10 mínútur til umráða. Röð flokkanna verður þessi: Í fyrri umferð: Sjálfstfl., Alþb., Framsfl., Alþfl. og SF. Í síðari umferð: Framsfl., Alþfl., Sjálfstfl., SF og Alþb. Ræðumenn auk forsrh. verða þessir: Af hálfu Sjálfstfl. talar Steinþór Gestsson, 6. þm. Suðurl., í síðari umferð. Af hálfu Alþb. tala Gils Guðmundsson, 3. þm. Reykn., í fyrri umferð, og Svava Jakobsdóttir, 5. landsk. þm., í síðari umferð. Af hálfu Framsfl. tala Gunnlaugur Finnsson, 4. þm. Vestf., í fyrri umferð, og Stefán Valgeirsson, 3. þm. Norðurl. e., í síðari umferð. Af hálfu Alþfl. tala Benedikt Gröndal, 2. landsk. þm., og Jón Árm. Héðinsson, 1. landsk. þm., í fyrri umferð, og Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv., í síðari umferð. Fyrir SF tala Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf., í fyrri umferð, og Magnús T. Ólafsson, 3. landsk. þm., í síðari umferð. — Hefst þá umr. og tekur hæstv. forsrh. Geir Hallgrímsson til máls.