27.04.1978
Efri deild: 88. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4016 í B-deild Alþingistíðinda. (3268)

272. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Landbrh. (Halldór E, Sigurðsson) :

Herra forseti. Vegna þess að ég legg mikið kapp á að koma þessu máli til hv. landbn. og 2. umr., þá ætla ég ekki að fara út í neina umr. um málið frekar en ég gerði í framsöguræðunni áðan. En út af fsp. hv. 2. þm. Norðurl. e. vil ég taka skýrt fram, að upplýsingarnar skulu liggja fyrir, og gleðja hann með því, að prósentulækkun hefur verið árlega og orðinn er verulegur munur. Ég skal láta upplýsingarnar ná yfir árið næst á undan því sem ég tók við starfi landbrh. og til síðustu áramóta.