27.04.1978
Sameinað þing: 73. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4059 í B-deild Alþingistíðinda. (3317)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (Ásgeir Bjarnason) :

Umræðan fer þannig fram, að hver þingflokkur fær til umráða hálfa klukkustund. Umferðir verða tvær, 15–20 mín. í þeirri fyrri og 10–15 mín. í þeirri síðari. Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Alþb., Alþfl., SF, Framsfl. og Sjálfstfl. Ræðumenn flokkanna verða: Fyrir Alþb. í fyrri umferð Garðar Sigurðsson, 5. þm. Suðurl., og Karl G. Sigurbergsson. 3. þm. Reykn., í síðari umferð Ragnar Arnalds, 5. þm. Norðurl. v. Fyrir Alþfl. í fyrri umferð Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm, Reykv., og Sighvatur Björgvinsson, 8. landsk. þm., í síðari umferð Bragi Sigurjónsson, 4. landsk. þm., og Benedikt Gröndal, 2. landsk. þm. Fyrir SF í fyrri umferð Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf., og í síðari umferð Magnús T. Ólafsson, 3. landsk. þm. Fyrir Framsfl. í fyrri umferð Ólafur Jóhannesson dómsmrh., en í síðari umferð Einar Ágústsson utanrrh. Fyrir Sjálfstfl. í fyrri umferð Geir Hallgrímsson forsrh. og í síðari umferð Matthías Á. Mathiesen fjmrh.

Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls hv. 5. þm. Suðurl., Garðar Sigurðsson, og talar af hálfu Alþb.