28.04.1978
Neðri deild: 87. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4154 í B-deild Alþingistíðinda. (3398)

241. mál, manneldisráð

Frsm. (Jón Skaftason) :

Virðulegi forseti. Heilbr.- og trn. Nd. hefur haft til athugunar frv. til laga um manneldisráð, sem er 241. mál á þessu þingi. Frv. þetta er undirbúið af nefnd sem heilbr.- og trmrh. skipaði 6. júní s. l. til þess að endurskoða lög um manneldisráð, nr. 16 frá 24. jan. 1945. Helstu nýmæli í frv. frá gildandi lögum eru tvö. Í fyrra lagi er nýmæli um fræðslu á sviði manneldisfræði og í öðru lagi um leiðir til þess að efla samstarf á milli framleiðenda og neytenda matvæla.

Heilbr.- og trn. Nd. mælir einróma með samþykkt frv.