28.04.1978
Neðri deild: 87. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4155 í B-deild Alþingistíðinda. (3402)

255. mál, söluskattur

Frsm. (Lárus Jónsson) :

Hæstv. forseti. Þetta frv. felur í sér að þyngja viðurlög við vanskilum á söluskatti í samræmi við hækkun vaxta. Frv. felur ekki önnur ákvæði í sér. Það hefur verið til athugunar hjá fjh.- og viðskn. og er nál. hennar á þskj. 696. N. mælir með samþykkt frv., en fjarverandi afgreiðslu málsins var Lúðvík Jósepsson.