28.04.1978
Neðri deild: 87. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4163 í B-deild Alþingistíðinda. (3416)

203. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Hér er enn um að ræða breyt. á lögum nr. 33/1966, um fuglaveiðar og fuglafriðun. Mál þetta er flutt af hv. þm. Sigurlaugu Bjarnadóttur, Jónasi Árnasyni og Gunnlaugi Finnssyni. Ég tel ástæðulaust að vera að tíunda hvað í þessu frv. felst, en vil aðeins vísa til þeirra raka og forsendna, sem ég hef haft uppi varðandi tvö síðustu mál, og upplýsa að eftir atvikum og með hliðsjón af því leggur n. til að þessu máli verði vísað til ríkisstj.