28.04.1978
Neðri deild: 87. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4221 í B-deild Alþingistíðinda. (3430)
282. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :
Virðulegi forseti Það eru örfá orð við lok þessarar umr. Varðandi það, sem hv. þm. Lúðvík Jósepsson sagði um gildistöku þessa frv., ef að lögum verður, þá liggur ljóst fyrir að það tekur gildi frá 1. jan. 1979, við álagningu skatta frá og með þeim degi.
Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka hv. fjh.- og viðskn, fyrir hennar störf og það að vel hefur verið unnið að þessu frv. Ég gerði mér auðvitað grein fyrir því, eins og ég sagði við 1. umr. máls, að æskilegra hefði verið að frv. hefði verið fyrr á borðum þm. En sú mikla vinna og sú mikla umr., sem fram fór á s. l. þingi um skattamálin, hefur að sjálfsögðu verið nú til halds og trausts fyrir þá sem að þessum málum hafa unnið.
Ég er fyllilega samþykkur þeim till. sem meiri hl. fjh.- og viðskn. flytur við frv.
Hv. 5. þm. Reykn., formaður fjh.- og viðskn., gerði grein fyrir kostnaði við till. þær, sem minni hlutarnir flytja, og benti réttilega á að ekki hefði nógu nákvæmlega verið reiknað út hvað slíkt kostaði og kannske flutningurinn ekki í þeim tilgangi að þær næðu fram að ganga, heldur að hægt væri að veifa þeim sem þskj. síðar.