29.04.1978
Efri deild: 94. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4294 í B-deild Alþingistíðinda. (3522)

249. mál, erfðafjárskattur

Frsm. (Jón Helgason) :

Herra forseti. Félmn. hefur fengið frv. til l. um breyt. á l. um erfðafjárskatt til athugunar. Efni þessa frv. er um að hækka þau skattþrep sem erfðafjárskattur miðast við. Hækkun á þeim var síðast gerð árið 1972, og sú hækkun, sem frv. gerir ráð fyrir, er í samræmi við þá hækkun sem fyrst og fremst hefur orðið á fasteignum frá þeim tíma, í samræmi við það fasteignamat sem nú gildir.

Félmn. var sammála um að mæla með samþykkt frv.