02.05.1978
Sameinað þing: 73. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4310 í B-deild Alþingistíðinda. (3554)

39. mál, flugsamgöngur við Vestfirði

Magnús T. Ólafsson:

Herra forseti. Þar sem fyrir lá við afgreiðslu málsins í allshn., að hlutaðeigandi ríkisstofnun hefði ákveðið að framkvæma athugun þá, sem um ræðir í till., á komandi sumri og þessi vitneskja hefur enn verið staðfest fyrir þessa atkvgr., eins og fram kom í máli hv. formanns allshn., þá tel ég afgreiðslu n. þá einu eðlilegu eins og málið lá og liggur fyrir og segi því já.