02.05.1978
Sameinað þing: 73. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4310 í B-deild Alþingistíðinda. (3555)

39. mál, flugsamgöngur við Vestfirði

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Það mun ekki vera algengt, mun nánast vera einsdæmi, að þm. greiði atkv. með því að vísa máli frá, sem hann er flm. að. Ég tel, að það sé einsdæmi í þingsögunni, að slíkt geti gerst, vegna barnslegs trúnaðartrausts á flugmálastjóra. Ég get ekki annað sagt en mikil er trú þín, kona. Ég segi nei.