02.05.1978
Neðri deild: 91. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4376 í B-deild Alþingistíðinda. (3632)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Virðulegi forseti. Ég er því miður ekki kunnugur forsögu þeirri er hv. síðasti ræðumaður rakti hér, hv. 8. landsk. þm., og skal því ekki fjalla um hana. Ég vil aðeins láta það koma fram, að hæstv. iðnrh. tjáði mér í síðustu viku að hann þyrfti að fara af landi brott til þess að sitja fund í Osló, aðalfund Íslenska járnblendifélagsins, og síðan að taka þátt í fundum í Kaupmannahöfn. Ég hef fengið þær fréttir nú í dag, að hann hygðist ekki koma heim fyrr en 9. maí, og veit ekki hvað hefur breytt ferðaáætlunum hans, en ég mun tjá hæstv. ráðh., að hans hafi verið saknað í þingsölum, og geta um ástæður fyrir því.