02.05.1978
Neðri deild: 92. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4391 í B-deild Alþingistíðinda. (3664)

284. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur og Seltjarnarneskaupstaðar

Frsm. (Gunnlaugur Finnsson):

Herra forseti. Félmn. hefur athugað þetta mál og það er raunar hliðstætt frv. sem við höfum afgreitt hér áður, sem var um lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðarkaupstaðar og Garðakaupstaðar. Gerðir hafa verið sérstakir samningar á milli Reykjavíkurborgar og Seltjarnarneskaupstaðar, þeir voru gerðir 1976, og er nú óskað eftir staðfestingu Alþ. á þeim samningum. N. leggur því til að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.