03.05.1978
Neðri deild: 96. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4441 í B-deild Alþingistíðinda. (3795)
301. mál, orlof húsmæðra
Frsm. (Gunnlaugur Finnsson):
Hæstv. forseti. N. fjallaði um þetta frv. í morgun, eins og það var afgreitt frá Ed., og varð sammála um að mæla með því, að það yrði samþ. óbreytt eins og það kom þaðan. Mér finnst samt rétt að vekja athygli á því, að hér er verið að breyta lögunum, sem sett voru rétt fyrir jólin 1975, þar sem ýmis verkefni, sem höfðu verið sameiginleg ríki og sveitarfélagi, voru færð yfir til sveitarfélaganna alfarið. Það hafa þess vegna komið upp spurningar um hvort út af fyrir sig sé rétt að Alþ. einhliða taki ákvarðanir um að auka útgjöld sveitarfélaganna lögbundið í málaflokkum sem þau fara með ein út af fyrir sig, án þess að á undan hafi farið viðræður um verkaskiptinguna og tekjuskiptinguna. Hins vegar er hér um óverulega upphæð að ræða þar sem gert er ráð fyrir 100 kr. á hvern íbúa í landinu eða u. þ. b. 22 millj. í heild, og málið það smátt í sniðum að sveitarfélögunum verður ekki íþyngt, enda hefur komið í ljós við könnun, að samkv. úrtaki úr fjárhagsáætlunum sveitarfélaganna hafa velflest sveitarfélögin gert ráð fyrir aukningu á þessu sviði sem er fyllilega sambærileg við það sem verða mundi að lögum yrði þetta frv. samþykkt.
Ég vil líka skýra frá því, að upp komu í nefndinni nokkrar vangaveltur um hvort sjálfsagt væri eða rétt að skuldbinda sveitarstjórnir, ef orlofsnefndirnar sem slíkar væru ekki virkar, án tímamarka til þess að leggja til hliðar eða afhenda þær greiðslur sem gert er ráð fyrir í frv., ef svo kynni að fara að orlofsnefndir sinntu ekki þessum málum né heldur notuðu það fjármagn, sem fram yrði lagt, í því skyni sem til er ætlast. Nefndin gerði þó ekki till. til breyt. í trausti þess, að þessi starfsemi verði áfram alls staðar virk. En ef svo reyndist að hún yrði það ekki, þá kæmi til greina, a. m. k. að mínu mati, að breyta lögunum síðar þannig að skylda sveitarfélaganna félli niður eftir ákveðið árabil, ef svo yrði í framkvæmd að orlofsnefndir notuðu ekki fjármuni til þess, sem þær eiga að gera, og söfnuðu þeim ár af ári inn á bók.
Sem sagt, hér er um tiltölulega lítið fjárhagsmál að ræða, og af þeirri ástæðu fyrst og fremst og þeirri, að nefndin telur þetta gott málefni og auk þess er lagt til, sem miklu eðlilegra er, að miðað verði við íbúatölu, en ekki miðað við starfandi húsmæður í sveitarfélaginu, sem getur verið ákaflega teygjanlegt hugtak, þá leggur n. til að þetta frv. verði samþ. óbreytt eins og það kom úr Ed.