05.05.1978
Sameinað þing: 74. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4451 í B-deild Alþingistíðinda. (3810)
68. mál, öryggisbúnaður smábáta
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Út af umr. þeirri sem hér fer fram um þáltill. á þskj. 77 vil ég taka fram, að á vegum samgrn. hefur verið unnið að reglugerð í sambandi við þetta mál nú s. 1. vetur. Í því sambandi hefur verið leitað umsagna aðila sem eiga skemmtibáta og hafa með sér félagsskap þar að lútandi, og reglugerðarbeinagrind mun vera til í rn., en hefur hins vegar dregist nú í sambandi við þetta mál. Ég lít svo á, að þó að þessi till. verði afgreidd eins og hv. allshn. leggur til, þá sé ekkert því til fyrirstöðu, að rn. hafi rétt til þess að gefa út reglugerð um þetta efni sem mundi gilda þangað til lög hefðu verið sett um málið. Þess vegna mun af minni hendi verða unnið að því að láta samgrn. halda áfram með þessa reglugerð og leita eftir samstarfi við Slysavarnafélagið um hana og fyrst og fremst miða við að hún nái þeim tilgangi sem ætlast er til um öryggi og verði ódýr í framkvæmd, vegna þess að rn. hefur þar ekki yfir miklum fjármunum að ráða. En ég tel ekki að þáltill. þessi, þó samþykkt yrði eins og n. leggur til, hamli gegn því að gefa út reglugerð núna í þessu sambandi, þó að lög um þessi atriði komi fram síðar. Þá er málið komið á annað stig. En rétt til þess að gefa út reglugerð í þessu sambandi tel ég að rn. hafi og muni nota.