05.05.1978
Efri deild: 99. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4464 í B-deild Alþingistíðinda. (3836)

136. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Allshn. Ed. hefur farið yfir frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar. Frv. hefur, eins og hefur raunar komið fram við 1. umr., sætt sams konar meðferð og venja hefur verið á undanförnum árum. Það hefur verið yfirfarið sérstaklega af formönnum allshn. og skrifstofustjóra Alþingis og n. síðan fjallað um málið hvor í sínu lagi í hvorri deild. Á frv., eins og það er nú eftir þær breytingar sem urðu á því í Nd., er till. um að 36 mönnum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur.

Allshn. Ed. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt.