06.05.1978
Efri deild: 104. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4634 í B-deild Alþingistíðinda. (3998)
181. mál, bann við fjárhagslegum stuðningi erlendra aðila við íslenska stjórnmálaflokka
Utanrrh. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Ég hef aldrei dregið neina dul á það í þessari hv. d. við meðferð þessa máls, að mér finnst óþarflega hratt riðið úr hlaði þegar lög um íslenska stjórnmálaflokka eru í undirbúningi og hér er tekið út eitt atriði og hespað af í lagaformi á skömmum tíma. En frv. nýtur mikils fylgis og auðvitað ræður meiri hl. eins og löngum er. Hv. Nd. hefur, eins og áðan var getið um, gert breytingar á frv. frá því sem það fór héðan, breytingar sem ég tel mjög orka tvímælis — mjög svo.
En ég vek athygli á því, að við erum með þessu að fara inn á áður ókunna braut, sem ég hygg að ekki muni tíðkast að fara í nágrannalöndum okkar þar sem sendiráðum á að banna hvers konar útgáfustarfsemi. Nú má vera að túlka megi þetta orðalag þannig, að hér sé einungis um að ræða blaðaútgáfu, þannig að enn þá sé heimilt að gefa út upplýsingarit og annað slíkt, og ég verð að vona að lögin verði skilin á þann veg, því að ég hygg að við hefðum ekki unað því alls kostar, ef við hefðum ekki t. d. í meðferð landhelgismáls okkar mátt gefa út á erlendum málum og dreifa erlendis upplýsingabæklingum og rökstuðningi fyrir málflutningi okkar. Mér er ljóst að það er of seint að fara að hrófla við þessum ákvæðum, enda njóta þau eflaust meirihlutastuðnings. En ég vil þá, um leið og ég læt þessi varnaðarorð frá mér fara, vonast til þess, að sá skilningur verði lagður í þessi lög, ef þau verða samþykkt sem allar horfur eru á, að þeim verði beitt með varfærni og af ítrustu aðgát, þannig að við förum ekki að ganga fram fyrir skjöldu í því að hefta prentfrelsi ofan í allar þær samþykktir sem við höfum staðið að á erlendum vettvangi í gagnstæða átt.