06.05.1978
Efri deild: 104. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4634 í B-deild Alþingistíðinda. (3999)

181. mál, bann við fjárhagslegum stuðningi erlendra aðila við íslenska stjórnmálaflokka

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Að gefnu tilefni í ummælum hæstv. utanrrh. vil ég hreinlega mótmæla því, að nokkurt sendiráð eða erlent ríki hafi rétt til að gefa eitt eða annað út reglulega hér, eins og átt hefur sér stað og komið hefur m. a. frá rússneska sendiráðinu hér eða Novosti fréttastofunni. Það er allt annað að dreifa upplýsingabæklingum eða gefa reglulega út bæklinga eða blöð.