10.11.1977
Sameinað þing: 15. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 598 í B-deild Alþingistíðinda. (400)
318. mál, verðlag
Fyrirspyrjandi (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir skýr og greinileg svör. Ég vil í fyrsta lagi láta í ljós óánægju yfir því, að verðlagsyfirvöldum skuli vera kunnugt um þetta kerfi. Mikið er við það unnið að vitneskja er þó fyrir hendi. Enn fremur er gott að heyra fullyrðingu þeirra um að tekið sé tillit til þessa við ákvörðun á álagningarreglum. Hins vegar er viðurkennt í svarinu að á tilteknu tímabili hafi verðlag af þessum ástæðum verið of hátt, en síðan tekið með við endurskoðun. Ég verð að segja að kerfi þetta, eins og það kemur í ljós, virðist vera nokkuð laust í reipunum og duttlungakennt og varla við því að búast að verðlagsyfirvöld viti ávallt nákvæmlega um þessa afslætti, t.d, þegar um sérstaka afslætti er að ræða sem oft geta verið miklu hærri en þau 5% sem talin eru algengust. Ég tel ríka ástæðu til að henda á þetta atriði og vill vænta þess, að verðlagsyfirvöld láti einskis ófreistað til að hindra að þessi aðferð verði notuð til þess að fá fram of hátt verðlag á varningi í landinu.