06.05.1978
Sameinað þing: 76. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4645 í B-deild Alþingistíðinda. (4029)
180. mál, atvinnuleg og félagsleg afstaða byggðarlaganna í nágrenni Keflavíkurflugvallar
Frsm. (Jón Skaftason):
Herra forseti. Allshn. Sþ. hefur haft til athugunar og umfjöllunar till. til þál. um könnun á atvinnulegri og félagslegri aðstöðu byggðarlaganna í nágrenni Keflavíkurflugvallar. Var samkomulag um það í n. að mæla með samþykkt þáltill. Einn nm., Ellert B. Schram, var fjarverandi afgreiðslu málsin.