06.05.1978
Sameinað þing: 76. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4645 í B-deild Alþingistíðinda. (4031)

178. mál, uppbygging strandferðaþjónustunnar

Frsm. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Allshn. hefur haft til athugunar og umfjöllunar till. til þál. um endurnýjun og uppbyggingu strandferðaþjónustunnar. N. barst umsögn frá Skipaútgerð ríkisins sem er mjög jákvæð gagnvart efni till. Nm. urðu allir sammála um að leggja til að till. yrði samþykkt óbreytt. Einn nm., Ellert B. Schram, var fjarverandi afgreiðslu málsins.