06.05.1978
Sameinað þing: 77. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4662 í B-deild Alþingistíðinda. (4041)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn):

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 99. löggjafarþing, lýkur störfum laugardaginn 6, maí 1978. Mun ég því slíta Alþingi þann dag.

Gert í Reykjavík 5. maí 1978.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkv. þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.

Ég þakka þm, störf þeirra og óska þeim góðrar heimferðar og alls velfarnaðar. Þjóðinni óska ég allra heilla og bið alþm. að minnast fósturjarðarinnar með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og forsrh., Geir Hallgrímsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi. Var síðan af þingi gengið.